Í gamla minnisbók hef ég skrifað tilvitnun sem fær mig alltaf til að hlæja. Leikkonan Emma Thompson var í NYT-dálkinum By the Book og þegar hún var spurð út í síðustu bókina sem fékk hana til að gráta svaraði hún: „I was on holiday years ago with “Corelli’s Mandolin.” Rendered inconsolable and had to be put to bed for the afternoon“ (Sunday Book Review, 23.09.2012). Ég dýrk'ana. Það er kominn tími á annan bókalista og bók Bernières er á honum, Vintage Books-útgáfa, fallega myndskreytt af Rob Ryan. Þarna er líka skáldsaga eftir Sigurð Pálsson, sem er í miklu uppáhaldi. Ég sá hann stundum á kaffihúsum í Reykjavík, alltaf svo smart til fara, gjarnan með mynstraðan silkihálsklút eða alpahúfu (hann lærði í Frakklandi). Ég hef þegar minnst á Doris Lessing og að ég væri að endurlesa Little Women. Hér er № 7 bókalistinn, sá fyrsti árið 2017 (til þæginda hef ég númerað listana):
Ég er næstum því með samviskubit yfir því að hafa ekki lesið æviminningar Athill, Instead of a Letter, en þegar ég sá Instead of a Booká útsölu í Waterstones vissi ég að hún færi á listann minn. Í bókinni eru bréf sem hún skrifaði í yfir þrjátíu ár til ameríska ljóðskáldsins Edward Field, sem geymdi þau og vildi gefa út. Í innganginum bendir Athill gamansamlega á:
· Fictions eftir Jorge Luis Borges
· The Grass is Singing eftir Doris Lessing
· The Golden Notebook eftir Doris Lessing
· Captain Corelli's Mandolin eftir Louis De Bernières
· Instead of a Book: Letters to a Friend eftir Diana Athill
· Local Souls eftir Allan Gurganus
· Parísarhjól eftir Sigurð Pálsson
· In Montmartre: Picasso, Matisse and Modernism in Paris, 1900-1910 eftir Sue Roe
· Little Women eftir Louisa May Alcott

Usually when someone's letters are published the writer is dead. In this case there was a problem: Edward is six years younger than I am, but since I'm ninety-three that doesn't make him young. If he waited until I was dead he might be dead too. (bls. vii)Hrós til rithöfunda sem fá mann til að skella upp úr í bókabúð! Gurganus er höfundur sem ég hef ekki lesið áður. Ég keypti bókina hans eftir að hafa hlustað á samræður Michael Silverblatt við hann í Bookworm (þætti frá nóv. 2013) og endaði á því að hlusta á allar samræður þeirra. Ég var að hugsa um að setja hana upp í hillu og lesa fyrst Oldest Living Confederate Widow Tells All, en bókin togaði í mig og fór á listann. Það gladdi mig að finna bók Roe á bókasafninu. Á þessum tímapunkti get ég lítið sagt um hana annað en að ég vildi að í henni væru fleiri myndir (á myndinni minni hér að ofan sést í málverk Modigliani, Caryatid, 1911).
![]() |
Vanessa Bell, Nude with Poppies, 1916 |
Stundum óskaði ég þess ég byggi nær London. Ef svo væri myndi ég taka næstu lest til að sjá Vanessa Bell-sýningunaí Dulwich Picture Gallery sem opnar í dag (þangað er stutt lestarferð frá miðri London). Listakonan Vanessa Bell (1879–1961) tilheyrði bóhemíska Bloomsbury-hópnum og var systir Virginia Woolf (ljósmyndin af henni sem sést á myndinni minni er tekin fyrir utan Charleston árið 1925). Sýningunni lýkur 4. júní. Í tengslum við sýninguna kemur út bókin Vanessa Bellí ritstjórn Sarah Milroy (Philip Wilson Publishers) sem mig langar að eiga. Ef þið eruð Bell-aðdáendur þá langar mig að benda ykkur á safnaratölublaðHarper's Bazaar UK, mars 2017, sem er eingöngu fáanlegt í gegnum Dulwich-safnið.
Es. Mig langar að þakka bloggaranum Diana Mieczan sem skrifar exPress-o fyrir skemmtilega umfjöllun um mitt blog. Hún bendir réttilega á að undir kaffibollanum mínum er yfirleitt að finna tauservíettu. Ég byrjaði á þessu fyrir löngu síðan og vil meina að kaffið bragðist betur.
mynd mín | ljósmynd af Vanessa Bell er úr bókinni Charleston: A Bloomsbury House & Garden | málverk Amedeo Modigliani er úr bókinni In Montmartre© Musée d'Art Moderne de la Ville de Paris | málverk Vanessa Bell er af vefsíðu Art UK© 1961 estate of Vanessa Bell, Henrietta Garnett, Swindon Art Gallery